Segja að kröfum skiptastjóra hafi verið hafnað

Stjórnendur Capacent segir að kröfu skiptastjóra í þrotabúi GH1 (áður Capacent) um innsetningu á eignum Capacent hafi verið vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur 21. febrúar.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórnendum fyrirtækisins. Bent er á að í desember á síðasta ári hafi kröfu skiptastjóra um lögbann á notkun vörumerkis Capacent verið synjað af sýslumanni.

Fréttatíminn greinir í dag frá því að CreditInfo hafi nýlega gert tilboð um kaup á Capacent ehf. Tilboðið var sent í lok febrúar 2011, um hálfu ári eftir að starfsmenn keyptu reksturinn.  Í fréttinni er staðhæft að tilboðið sé tífalt hærra en það kaupverð sem greitt var fyrir rekstur og vörumerki Capacent í september 2010. Þetta segja stjórnendur Capasent að sé rangt.

„ Í fyrsta lagi var það verð sem starfsmenn greiddu margfalt hærra en fram kemur í fréttinni. Fyrir liggur óháð mat frá einu af stærstu endurskoðunarfyrirtækjum landsins þar sem staðfest er að kaupverð hafi verið eðlilegt. Engu að síður er ágreiningur um kaupverðið og í slíkum tilvikum er eðlilegt að skorið sé úr um ágreiningsefni fyrir dómstólum.
Í öðru lagi er verið að bera saman epli og appelsínur. Annars vegar kaup á eignum félags sem var að fara í gjaldþrot og hins vegar kaup á fyrirtæki í fullum rekstri.

Frá því að nýja félagið var stofnað hefur starfsfólk Capacent lagt tugi milljóna í félagið og byggst hafa upp viðskiptakröfur og aðrar eignir sem ekki voru til staðar i september í fyrra, auk þess sem tókst að semja  að nýju við viðskiptavini og samstarfsaðila.
Við kaup á rekstri Capacent sátu viðskiptakröfur og reiðufé eftir í þrotabúinu enda veðsettar viðskiptabanka Capacent. Einungis óveðsettar eignir voru keyptar. Niðurstaða sýslumanns í lögbannsmáli, sem byggði m.a. á að veðsettar eignir höfðu verið seldar er sú að löglega hafi verið að kaupunum staðið.

Á því hálfa ári sem liðið er frá þroti gamla félagsins hefur starfsfólk lagt á sig ómælda vinnu til að koma rekstri nýs félags á rétta braut.  Það er í sjálfu sér ánægjulegt að önnur fyrirtæki skuli nú sýna áhuga á að kaupa reksturinn eins og hann er í dag. Félagið er hins vegar ekki til sölu,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK