Viðskipti
| mbl
| 11.3.2011
| 16:30
Úrvalsvísitalan undir 1.000 stigum
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 1,54 prósent og var lokagildi vísitölunnar 988,92 stig og er hún því komin að nýju undir 1.000 stiga markið.
Bréf Atlantic Petroleum lækkuðu um 4,3 prósent í dag, bréf Össurar um 2,54 prósent og Icelandair um 0,22 prósent. Bréf Marels hækkuðu aftur á móti um 0,4 prósent. Velta á hlutabréfamarkaði nam 47,4 milljónum króna og voru langmest viðskipti með bréf Icelandair.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















