Fiskafli eykst
mbl.is
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, var 38,7% meiri en í febrúar 2010 samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.
Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 28,2% miðað við sama tímabil 2010, sé hann metinn á föstu verði.
Aflinn nam alls 210.007 tonnum í febrúar 2011 samanborið við 106.743 tonn í febrúar 2010.
Botnfiskafli dróst saman um tæp 7700 tonn frá febrúar 2010 og nam rúmum 33.700 tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 18.000 tonn, sem er samdráttur um 2.600 tonn frá fyrra ári.
Ýsuaflinn nam rúmum 4600 tonnum sem er um 1900 tonnum minni afli en í febrúar 2010. Karfaaflinn dróst saman um 1900 tonn samanborið við febrúar 2010 og nam tæpum 4200 tonnum. Um 2500 tonn veiddust af ufsa sem er um 400 tonnum minni afli en í febrúar 2010.
Afli uppsjávartegunda nam tæpum 173.000 tonnum, sem er um 110.200 tonnum meiri afli en í febrúar 2010. Hagstofa segir, að aukningu í uppsjávarafla megi rekja til rúmlega 170.700 tonna loðnuafla í febrúar samanborið við 55.000 tonn í febrúar 2010.
Nær enginn síldarafli, eða 7 tonn, var í febrúarmánuði og dróst hann saman um 1980 tonn frá fyrra ári. Afli gulldeplu nam 2200 tonnum sem er samdráttur um tæp 3500 tonn miðað við febrúar 2010.
Flatfiskaflinn var rúm 2700 tonn í febrúar 2011 og jókst um tæp 800 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 514 tonnum samanborið við um 414 tonna afla í febrúar 2010.



















