Geta haldið máli gegn Kaupþingi áfram
Roberg Tchenguiz. Reuters
Dómari við viðskiptadómstól í Lundúnum hefur úrskurðað að fjárvörsluaðilar fyrir Tchenguiz Discretionary Trust (TDT) geti haldið áfram skaðabótamáli gegn Kaupþingi. Bótakröfurnar nema yfir 1 milljarði punda, 186 milljörðum króna.
Um er að ræða mál, sem byggir m.a. á fullyrðingum kaupsýslumannsins Roberts Tchenguiz um að stjórnendur Kaupþings hafi veitt honum rangar upplýsingar um fjárhagslegan styrk bankans. Því hafi Tchenguiz ekki leitað til annarra banka og orðið fyrir miklu tjóni þegar Kaupþing féll.
Í tilkynningu frá lögmannsstofunni Edwards, Angell, Palmer & Dodge kemur fram að TDT telji sig hafa orðið fyrir tjóni vegna falls Kaupþings, sem nemi hundruðum milljóna punda. Rétt sé að enskir dómstólar fjalli um bótakröfur vegna þessa.
Kaupþing krafðist þess að málinu yrði vísað frá og taldi að enskir dómstólar hefðu ekki lögsögu í því.
Robert Tchenguiz og Vincent bróðir hans voru meðal þeirra, sem handteknir voru í síðustu viku vegna rannsóknar bresku fjársvikalögreglunnar á lánveitingum Kaupþings mánuðina áður en bankinn féll haustið 2008.
|
|
Tilkynning lögmannsstofunnar |





















