BM Vallá hagnast um 45 milljónir
BM Vallá ehf. skilaði 45 milljón króna hagnaði í fyrra, en félagið var byggt upp á eignum þrotabús gömlu BM Vallár sem varð gjaldþrota í vorið 2010.
Arion banki keypti nokkuð stóran hluta eigna félagsins, endurskipulagði og bjó til nýtt fyrirtæki, sem er í eigu Eignabjargs, eignaumsýslufélags bankans.
Sala félagsins nam tæplega 1,3 milljörðum króna. Hagnaður fyrir fjármagnsliði nam um 85 milljónum króna, en langtímaskuldir félagsins auk afborgana næsta árs hlaupa á tæplega 900 milljónum króna.
BM Vallá skilaði aldrei inn ársreikningum til þar til bærra yfirvalda, og því er trauðla hægt að sjá hversu mikla skuldaafskrift fyrirtækið hefur fengið. „Það var ekki áhættulaust að reyna að endurreisa félagið sl. vor, eftir gjaldþrot þess gamla. Að nýja félagið hafi náð að skila hagnaði á fyrsta á starfsárinu er ánægjuefni fyrir stjórnendur,“ segir Hilmar Ágústsson, framkvæmdastjóri BM Vallár.



















