Gjaldeyriseign Arion eykst
Gjaldeyriseign bankans jókst skyndilega á dögunum, þegar Össur endurfjármagnaði erlent lán hjá bankanum hjá norrænum bönkum. Ómar Óskarsson
Þegar Össur gekk frá endurfjármögnun skulda hjá bönkum á Norðurlöndunum fékk Arion banki 180 milljónir dollara lán greitt upp. Bankinn segir eftirspurn eftir lánsfé takmarkaða.
Í svari við fyrirspurn vegna málsins segir Arion banki að Össur hafi vissulega greitt upp lán sitt hjá bankanum. „Við það eykst gjaldeyrisforði bankans og mun hluti hans verða nýttur í lánveitingar til nýrra verkefna en þó verður að hafa í huga að eftirspurn eftir lánsfjármagni hefur verið takmörkuð undanfarin misseri.“
Bankinn segir eftirspurnin eftir lánsfé kemur fyrst og fremst koma frá útflutningsatvinnuvegum landsins, „enda ekki öðrum heimilt að taka erlend lán í dag vegna gjaldeyrishafta.“
Eftirspurn sé hins vegar takmörkuð í þeim geirum, „vegna óvissu í sjávarútvegi og stjóriðjuframkvæmdum.“ Fyrirtæki haldi því enn að sér höndum hvað varðar fjárfestingar.



















