Viðskipti
| mbl
| 17.3.2011
| 21:05
| Uppfært
18.3.2011
10:26
Horn selur hlut sinn í Marel
Horn Fjárfestingarfélag ehf., sem er í eigu Landsbanka Íslands, hefur selt hlut sinn í Marel fyrir rúmlega 12,1 milljarð króna. Við söluna jók Eyrir Invest ehf. hlut sinn um 3% og er núna langstærst hluthafinn í Marel.
Horn var annar stærsti hluthafinn í Marel með um 13,8% hlut, en félagið seldi í dag allan hlut sinn. Eyrir Invest keypti hlutabréf í Marel fyrir rúmlega 2,6 milljarða króna. Félagið á núna 34,9% hlut í Marel. Ekki kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar hverjir hinir kaupendurnir eru en nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum landsins eiga hlut í Marel.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyrir Invest ehf, er jafnframt stjórnarformaður í Mare hf.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















