Rannsókn beinist helst að lánum til Roberts
Rannsókn Serious Fraud Office (SFO) á lánveitingum Kaupþings beinist fyrst og fremst að Robert Tchenguiz.
Ástæða þess að bróðir hans, Vincent, var líka færður til yfirheyrslu í Bretlandi í síðustu viku er sú að þegar harðna tók á dalnum hjá Robert og veðköllin hrönnuðust upp, hljóp Vincent undir bagga með bróður sínum og lánaði hluta eigna sinna til að bæta tryggingastöðu Roberts gagnvart bankanum.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins í Bretlandi rannsakar SFO fyrst og fremst að því virðist nánast takmarkalausan aðgang Roberts Tchenguiz að lánsfé hjá Kaupþingi. Þegar aðrir bankar gerðu veðköll hjá honum undir lok árs 2007 og á árinu 2008 kom Kaupþing Robert jafnan til aðstoðar með aukinni fyrirgreiðslu. Allar lánveitingar Kaupþings til Roberts Tchenguiz voru gerðar í gegnum móðurfélagið á Íslandi. En viðskiptasamband Roberts við bankann hófst hins vegar við Kaupthing Singer&Friedlander árið 2004.
Tilkynningaskylda
Ármann Þorvaldsson, sem veitti Kaupthing Singer&Friedlander forstöðu, sendi frá sér fréttatilkynningu í gær vegna yfirheyrslu sem SFO framkvæmdi á honum. Sagði í tilkynningunni að honum hefði verið sleppt eftir yfirheyrsluna að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Heimildir Morgunblaðsins herma að þau skilyrði feli í sér ákveðna tilkynningaskyldu til SFO, og að sömu skilyrði gildi fyrir aðra sem sættu yfirheyrslum SFO í síðustu viku. Þau skilyrði fela í sér tilkynningaskyldu vegna breytingar á lögheimili og ferðalaga út fyrir landsteina Bretlands. thg@mbl.is





















