Glímir við 2 milljarða punda skuldir
Breski kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz reynir nú að endurfjármagna yfir 2 milljarða punda skuldir, jafnvirði 370 milljarða króna, sem hvíla á fasteignafélögum hans.
Breska blaðið Financial Time segir, að Tchenguiz hafi í febrúar haldið einskonar „fegurðarsamkeppni" meðal fjárfestingarbanka um ráðgjöf hvernig hann eigi að endurskipuleggja og endurfjármagna skuldirnar.
Um er að ræða lán sem tekin voru hjá Lloyds, Royal Bank of Scotland, Allied Irish, Bayerische Landesbank, Citibank, Deutsche Bank og USB. Einnig fékk Tchenguiz 100 milljóna punda lán hjá Kaupþingi, sem hann segir að falli brátt í gjalddaga.
Blaðið hefur eftir Tchenguiz að eftir að hann og Robert bróðir hans voru handteknir í Lundúnum í síðustu viku vegna rannsóknar bresku fjársvikalögreglunnar á lánveitingum Kaupþings, hafi lánardrottnar hans fengið auknar tryggingar. Ákvörðun bresks dómara á miðvikuda að leyfa bræðrunum að halda áfram skaðabótamáli á hendur Kaupþingi hafi dregið úr þeim skaða, sem handtökurnar ollu. Bræðurnir krefja Kaupþing um yfir 1 milljarð punda í bætur.
Fyrirtæki Tchenguiz hafa ekki getað staðið í skilum og í vikunni var fasteignafélagið Peverel tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu Bank of America Merrill Lynch.
Tchenguiz vildi ekki tjá sig sérstaklega um rannsókn bresku fjársvikalögreglunnar en sagðist vera ósáttur við það hvernig staðið var að handtökunum í síðustu viku.
„Þetta var erfitt. Ég var nývaknaður en hafði ekki fengið morgunmat. Ég var þarna í nokkrar klukkustundir," hefur Financial Times eftir honum.





















