Viðskipti
| mbl
| 20.3.2011
| 7:53
| Uppfært
22.5.2012
10:55
Vilja rannsaka fyrrum mág Tchenguiz-bræðra
Breska blaðið Sunday Telegraph segir í dag, að breski kaupsýslumaðurinn Vivian Imerman, fyrrverandi mágur bræðranna Roberts og Vincents Tchenguiz, hafi nú blandast í rannsókn bresku fjársvikalögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), á lánveitingum Kaupþings.
Blaðið segir, að SFO hafi farið fram á það við breskan dómstól, að fá að leggja hald á gögn sem tengjast Imerman og er að finna á skrifstofum bræðranna. Talið er að um sé að ræða gögn sem tengjast hörðum lögfræðilegum deilum vegna skilnaðar Imermans og Lisu, systir Tchenguiz-bræðranna.
Deila um brynvarinn Rolls
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





















