Telja aðstæður í atvinnulífi slæmar
Mikill meirihluti stjórnenda fyrirtækja telja aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar samkvæmt reglubundinni könnun Capacent meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins.
Fram kemur á vef Samtaka atvinnulífsins, að samkvæmt könnuninni, sem gerð var í mars, telia 80% stjórnenda aðstæður slæmar, 19% að þær séu hvorki góðar né slæmar en 2% að þær séu góðar.
Þetta er örlítið skárri niðurstaða en fékkst í desember síðastliðunum þegar 84% stjórnenda töldu aðstæður slæmar.
Mat stjórnenda á aðstæðum eftir 6 mánuði er svipað og verið hefur. 22% þeirra sjá fram á betri tíma eftir 6 mánuði, 24% að aðstæður verði verri en 54% telja að þær breytist ekki.
Meiri bjartsýni ríkir á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 25% telja aðstæður batna, en á landsbyggðinni, þar sem einungis 12% telja þær batna. Stjórnendur í fjármálastarfsemi, verslun og þjónustu eru bjartsýnni en í öðrum greinum en mest svartsýni ríkir í byggingarstarfsemi, sjávarútvegi og samgöngum.
Þegar litið er eitt ár fram í tímann telja 49% stjórnenda að aðstæður verði betri en nú, 33% að þær verði óbreyttar og 18% að þær verði verri. Þessi niðurstaða er svipuð og verið hefur frá bankahruninu 2008 en því miður hafa væntingar um betri tíma að ári ekki náð fram að ganga.
Horfur um hagnað fyrirtækjanna eru þær að 45% búast við svipaðri afkomu á
þessu ári og í fyrra, 24% að hann verði meiri en 31% að hann verði minni.



















