Aflaverðmæti jókst milli ára

mbl.is

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 131 milljarði króna á árinu 2010 samanborið við rúma 115 milljarða á árinu 2009. Aflaverðmæti jókst því um tæpa 16 milljarða eða 13,7% á milli ára.

Að sögn Hagstofunnar var aflaverðmæti botnfisks 93,5 milljarðar króna á árinu 2010 og jókst um 13,6% frá fyrra ári þegar aflaverðmætið nam 82,3 milljörðum.

Verðmæti þorskafla var um 44,6 milljarðar og jókst um 20,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 15,2 milljörðum og dróst saman um 1% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 12 milljörðum, sem er 20% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 9,2% milli ára og nam 8,5 milljörðum á árinu 2010. Verðmæti annars botnfisks jókst í heild um 7,9% milli ára

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 9,2 milljörðum króna á árinu 2010, sem er 6,6% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 21,1% milli ára og nam 26 milljörðum. Verðmæti síldaraflans á árinu 2010 nam tæpum 10,9 milljörðum sem er 14,6% samdráttur frá árinu 2009. Verðmæti makríls nam 7,8 milljörðum á árinu 2010 samanborið við 4,5 milljarða árið áður.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 52,8 milljörðum króna á árinu 2010 og jókst um 22,9% frá fyrra ári. Aflaverðmæti sjófrystingar var 49,3 milljarðar, sem er 19,1% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 22,9% milli ára og var um 18,8 milljarðar.

Vefur Hagstofunnar

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Væntingar aukast með hækkandi sól.

Væntingar vaxa lítillega í maí

11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí mánuði, en Væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægri orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Innsýn í reksturinn

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir