Viðskipti
| mbl
| 23.3.2011
| 10:27
Hagnaðist um 170 milljónir
Hagnaður af rekstri Íslenskra verðbréfa hf. árið 2010 nam 170 milljónum króna. Niðurstaðan er í samræmi við áætlanir félagsins og í takt við afkomu þess árið 2009, þegar hagnaður nam 166 milljónum.
Eiginfjárhlutfall félagsins (CAD) var í árslok 26,7% en hlutfallið má ekki vera lægra en 8% skv. 84. grein laga um fjármálafyrirtæki.
Vöxtur var á öllum sviðum eignastýringar, hvort sem horft er til einstaklinga eða fagfjárfesta. Alls stýrði félagið 116 milljörðum króna fyrir viðskiptavini sína í árslok 2010 samanborið við 95 milljarða króna í árslok 2009.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















