Forsendur lántöku betri

Seðlabankastjóri segir Icesave-þjóðaratkvæðagreiðsluna það eina sem ógni möguleikum íslenska ríkisins …
Seðlabankastjóri segir Icesave-þjóðaratkvæðagreiðsluna það eina sem ógni möguleikum íslenska ríkisins á erlendri lántöku. Kristinn Ingvarsson

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að forsendur ríkissjóðs til erlendrar lántöku hafi batnað mikið. Icesave-þjóðaratkvæðagreiðslan sé eina hættan í þessum efnum.

Nefndi seðlabankastjórinn máli sínu til stuðnings að  undirliggjandi viðskiptaafgangur væri fyrir hendi, ríkisfjármál hefðu þróast í samræmi við áætlanir og staða Íslands væri að betri staða en annarra þjóða að því leyti. Stöðugleiki ríki í hagkerfinu, verðbólga sé á markmiði og skuldatryggingaálag fari lækkandi og sé lágt. „Eina sem ógnar þessari stöðu er eitthvað, er að lánshæfisfyrirtækin hafa sagt það, að ef niðurstaðan úr þjóðaratkvæðagreiðslunni verði neikvæð, gæti það haft slæm áhrif á lánshæfismatið,“ sagði Már, og vísaði þar til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um hvort Icesave-lögin haldi gildi sínu 9.apríl næstkomandi.

„Öllum áhyggjum af greiðslufalli ríkissjóðs hefur verið eytt algerlega,“ sagði Már og nefndi meðal annars að uppkaup Seðlabankans á erlendum skuldum ríkissjóðs hefðu hjálpað þar til.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK