Hagnaður Skipta 5,1 milljarður
mbl.is/Kristinn
Hagnaður Skipta, móðurfélags Símans, fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 5,1 milljarði króna á síðasta ári samanborið við 8,7 milljarða árið 2009. Bókfært tap Skipta á árinu 2010 nam 2,5 milljörðum króna.
Á aðalfundi Skipta, sem var haldinn í morgun, voru þau Skúli Valberg Ólafsson, Pétur J. Eiríksson, Þorvarður Sveinsson, Örn Guðmundsson og Jóhanna Waagfjörð kjörin í stjórn Skipta hf.
Skúli Valberg var jafnframt
kjörinn formaður og Pétur varaformaður.
Fram kemur í tilkynningu að lækkun EBITDA skýrist meðal annars af því að Skipti hafi selt Sirius IT auk þess sem varúðarfærsla vegna gerðardóms og sektir hafi haft áhrif á afkomu ársins. EBITDA hlutfallið var 15% en var 20% sé ekki tekið tillit til einskiptiskostnaðar, að því er segir í tilkynningu.
Bókfært tap Skipta á árinu nam 2,5 milljörðum króna sem skýrist einkum
af virðisrýrnun óefnislegra eigna, sem nam 4,9 milljörðum króna. Tap
félagsins nam 10,2 milljörðum króna árið áður.
Sala Skipta nam 33,6 milljörðum króna árið 2010 samanborið við 39,7 milljarða árið áður. Lækkunin skýrist einkum af því að í júlí seldi Skipti Sirius IT, sem fór því út úr samstæðunni frá þeim tíma.
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 6,0 milljörðum króna, samanborið við 9,1 milljarð árið áður. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3,5 milljörðum króna.
Fjármagnstekjur voru 1,4 milljarðar króna en þar af nam söluhagnaður 5,2 milljörðum króna.
Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum (nettó vaxtaberandi skuldir) námu 44,3 milljörðum um áramót en voru 54,4 milljarðar árið áður. Lækkunin skýrist einkum af sölu eigna.
Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 21 % og eigið fé er 22,3 milljarðar króna.
Skipti hf. hafa í öllum meginatriðum lokið samningum við lánveitendur félagsins og er vinna við skjalagerð á lokastigi. Öll lán félagsins eru í skilum og á árinu 2010 greiddu Skipti 7,9 milljarða króna í afborganir og vexti af lánum.
|
|
Afkoma Skipta |



















