Styðja Portúgal með skilyrðum
Jose Socrates forsætisráðherra Portúgals og Angela Merkel kannslari Þýskalands á leiðtogafundi ESB. Reuters
Leiðtogar evruríkjanna hafa samþykkt að styðja lánveitingar til Portúgals ef landið uppfyllir skilyrði Evrópusambandsins í efnahagsmálum.
Christine Lagarde, efnahagsráðherra Frakklands, vildi ekki tjá sig um hvort Portúgal þyrfti á aðstoð að halda til að geta staðið við skuldbindingar sínar. Hún sagði að unnið væri að málefnum Portúgals, sem er eitt fátækasta landið í ESB.
„Evrópulöndin innan evrusvæðisins hafa alltaf sagt að ef skilyrðin eru uppfyllt þá geta löndin fengið aðstoð,“ sagði Lagarde. „En þetta þarf að vera innan rammans. Þetta snýst ekki bara um að senda peningana af stað.“
Ríkisstjórn Portúgals féll í fyrradag eftir að frumvarp um niðurskurð í ríkisútgjöldum og hækkun skatta var fellt á portúgalska þinginu. Efnahagserfiðleikar Portúgals hafa áhrif á evruna og því þrýsta leiðtogar ESB á Portúgal að grípa til aðgerða í efnahagsmálum. Engin samstaða er hins vegar um aðgerðir milli stjórnmálaflokkanna í Portúgal.



















