Allen gagnrýnir Gates í nýrri bók
Paul Allen, sem stofnaði Microsoft á sínum tíma ásamt Bill Gates, gagnrýnir fyrrum félaga sinn harðlega í nýrri bók og segir hann hafa lagt á ráðin um að komast yfir hlutabréf Allens í fyrirtækinu.
Bókin nefnist Idea Man en þar rekur Allen æviminningar sínar. Kafli úr bókinni var birtur í tímaritinu Vanity Fair í dag en þar segir Allen, að Gates sé snillingur sem hafi verið með mikið ráðabrugg til að ná völdum í Microsoft árið 1982 þegar fyrirtækið var að verða stórveldi vegna stýrikerfisins MS-DOS.
Allen segir, að þeir Gates hafi ákveðið árið 1975 að stofna saman félag, Micro-Soft, eftir að ljóst þótti að svonefnt BASIC forrit, sem þeir þróuðu, gæti orðið söluvara. Allen segir, að hann hafi gengið út frá, að þeir myndu eiga hvor sinn helminginn í fyrirtækinu.
„En Bill hafði annað í huga," skrifar Allen. Hann hafi viljað 60% hlut þar sem hann hefði lagt fram meiri forritunarvinnu.
Allen féllst á þetta með semingi en skömmu síðar, eftir að þeir höfðu selt NRC Corp. leyfi til að nota BASIC fyrir 175 þúsund dali hafi Gates heimtað 64% hlut. Enn segist Allen hafi látið undan.
Árið 1980 réði fyrirtækið Steve Ballmer sem framkvæmdastjóra en Ballmer varð forstjóri Microsoft árið 2000.
Árið 1982 fékk Allen hvítblæði og þurfti að fara í geislameðferð. Á þessum tíma lentu þeir Gates í deilum og Allen fór að undirbúa brottför sína frá Microsoft.
Hann segist hafa heyrt þá Gates og Ballmer ræða um veikindi sín í desember þetta ár og hvernig þeir gætu þynnt út hlut Allens í Microsoft með því að gefa út nýtt hlutafé sem þeir og aðrir hluthafar gætu keypt.
Gates skrifaði Allen sex síðna bréf þar sem hann baðst afsökunar en Allen sagðist hafa verið ákveðinn í að hætta hjá Microsoft. Gates bauð Allen þá að kaupa hlutabréf hans í Microsoft á genginu 5 og hafnaði gagntilboði Allens um gengið 10. Allen hélt því bréfum sínum í Microsoft en lét Gates eftir að stýra Microsoft.
Gates er nú talinn annar ríkasti maður heims með 56 milljarða dala eignir. Allen er í 57. sæti á milljarðamæringalista blaðsins Forbes og er talinn eiga 13 milljarða dala eignir, aðallega hlutabréf í Microsoft.




















