Einn vildi lækka vexti
Einn nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabankans vildi lækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur þegar ákvörðun var tekin um vextina í byrjun mars. Fjórir nefndarmenn greiddu hins vegar atkvæði með tillögu seðlabankastjóra um óbreytta stýrivexti.
Fram kemur í fundargerð nefndarinnar, sem birt var í dag, að sá sem vildi lækka vextina benti á að staða þjóðarbúskapsins yrði áfram veik og enginn innlendur verðbólguþrýstingur væri til staðar.
Þessi nefndarmaður hélt því fram að ólíklegt væri að verðbólga af völdum óróa á alþjóðlegum hrávörumörkuðum myndi framkalla hrinu verð- og launahækkana í hinum veika íslenska þjóðarbúskap og hún ætti ekki að koma í veg fyrir að Seðlabankinn lækkaði vexti.
Nefndarmenn lögðu áherslu á að þar sem horfur væru á að verðbólga yrði áfram við verðbólgumarkmiðið og í ljósi þess að vextir væru fyrir neðan fyrra mat Seðlabankans á jafnvægisvöxtum, ríkti áfram óvissa um það í hvaða átt næstu vaxtabreytingar yrðu. Áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar sköpuðu einnig óvissu um svigrúm til skemmri tíma.



















