Viðskipti
| Morgunblaðið
| 31.3.2011
| 5:30
| Uppfært
5:48
Arion banki setur BM Vallá í opið söluferli og ætlar að selja allt félagið
Arion banki hyggst bjóða allt hlutafé BM Vallár til sölu. Söluferlið verður kynnt í dag, samkvæmt upplýsingum frá Arion banka. Fjárfestar sem uppfylla skilyrði bankans um þekkingu og fjárhagslegan styrk verða að geta tekið þátt í söluferli félagsins.
Frestur er til 2. maí næstkomandi til að skila inn óskuldbindandi tilboðum í félagið, en fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með söluferlinu. Gert er ráð fyrir því að allt hlutafé félagsins verði selt í söluferlinu, samkvæmt upplýsingum frá Arion banka. Félagið er formlega í eigu Eignabjargs, eins eignaumsýslufélaga bankans.
Greint var frá því fyrir skömmu að BM Vallá hefði hagnast um 45 milljónir króna á sínu fyrsta starfsári. Sala félagsins nam um 1,3 milljörðum króna. Fram kom í fréttatilkynningu frá BM Vallá að handbært fé frá rekstri hefði verið 85 milljónir króna, en að teknu tilliti til fjármögnunar var sjóðstreymi neikvætt um 14 milljónir króna á tímabilinu maí-desember.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















