Skipti greiða niður lán
Skipti eru móðurfélag Símans. mbl.is/Kristinn
Skipti hf. hafa undirritað samkomulag við lánveitendur félagsins, sem felur það í sér meðal annars að Skipti greiða niður alls um 16,7 milljarða króna af lánum félagsins. Í tilkynningu Skipta til Kauphallarinnar segir að á árinu 2010 greiddi Skipti alls 5,1 milljarð inn á lán félagsins og nema því heildargreiðslur Skipta til lánveitenda um 21,8 milljarði króna undanfarna mánuði.
Heildarafborganir frá hruni íslensks efnahagslífs nema alls um 27 milljörðum króna og mun sambankalán Skipta lækka úr um 41,4 milljörðum króna í um 24,7 milljarða króna við þessa greiðslu. Í tilkynningunni segir að engar skuldir séu afskrifaðar og að öll lán Skipta séu eftir sem áður í skilum.
„Viðræður hafa staðið um nokkurt skeið um að Skipti greiði lán félagsins hraðar niður en upphaflegir lánasamningar gerðu ráð fyrir. Lausafjárstaða Skipta hefur verið mjög sterk, félagið átti í lok árs um 20,0 milljarða króna í handbæru fé. Í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi hækkuðu skuldir Skipta umtalsvert líkt og flestra annarra íslenskra fyrirtækja. Þeir fjármunir sem nú eru greiddir hafa að mestu fengist við sölu erlendra eigna félagsins,“ segir í tilkynningunni.



















