2,7 milljarða króna skuld afskrifuð
Samkvæmt ársreikningi Sparisjóðs Bolungarvíkur nam eftirgjöf skulda sjóðsins 2709 milljónum króna.
Skuldaeftirgjöfin er færð inn sem tekjur í rekstrarreikningi bankans og er heildarafkoma hans fyrir skatta þá jákvæð upp á 2342 milljónir króna. Afkoman fyrir eftirgjöfina er hins vegar neikvæð upp á rúmar 360 milljónir króna.
Árið 2009 nam tap sjóðsins rúmum 2,6 milljörðum króna.
Hagnaður ársins 2010 eftir skatta er 1932 milljónir króna. Fyrir utan eftirgjöf skulda munar mestu um að virðisrýrnun eigna á síðasta ári er töluvert minni en árið 2009 eða 468 milljónir samanborið við 2103 milljónir árið 2009.
Fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðs Bolungarvíkur lauk í september á síðasta ári en vinna við hana hófst tveimur árum fyrr eða í október 2008. Seðlabanki Íslands og Byggðastofnun eignuðust þá 91,4% af stofnfé sjóðsins og var sá hlutur framseldur til Bankasýslu ríkisins.



















