Engin áhrif á núverandi skuldbindingar
Landsvirkjun segir að breyting Standard & Poor's á lánshæfiseinkunn fyrirtækisins hafi ekki í för með sér áhrif á núverandi skuldbindingar fyrirtækisins. S&P hefur sett lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar á athugunarlista með neikvæðum horfum.
Landsvirkjun segir að samkvæmt matsfyrirtækinu sé búist við að lánshæfiseinkunnir verði á athugunarlista næstu vikur og að tekin verði afstaða innan þess tíma.
„Núverandi lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar hjá S&P eru BB+ fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri og innlendri mynt. Skammtímaeinkunnir Landsvirkjunar eru B-1 í erlendri og innlendri mynt. Allar lánshæfiseinkunnir eru með neikvæðum horfum.
Breyting þessi endurspeglar samkonar breytingu sem Standard & Poor‘s gaf út í gær fyrir Ríkissjóð Íslands.
Að mati Landsvirkjunar hefur þessi breyting ekki í för með sér áhrif á núverandi skuldbindingar fyrirtækisins,“ segir Landsvirkjun í tilkynningu.



















