Viðskipti
| mbl
| 14.4.2011
| 13:28
S&P segir Íbúðalánasjóð og Landsvirkjun á athugunarlista
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur sett lánshæfismat Íbúðalánasjóðs og Landsvirkjunar á athugunarlista í kjölfar þess að fyrirtækið setti lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands á athugunarlista í gær með neikvæðum horfum.
Í tilkynningu um Landsvirkjun segir S&P, að talið sé að það geti haft neikvæð áhrif á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar að einkunn íslenska ríkisins hafi verið sett á athugunarlista.
Boðað er að nánari greining á Landsvirkjun verði birt síðar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















