Fjárfesting falli að ímynd
Fyrir sumar mun liggja fyrir rammaáætlun nýtingu virkjanakosta á Íslandi. Þetta sagði Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, ársfundi Landsvirkjunar sem fór fram á Grand Hótel.
Fullt er út úr dyrum á ársfundi félagsins. Í ávarpi sínu sagði iðnaðarráðherra að erlend fjárfesting í orkuiðnaði ætti að geta skilað hlutfallslega miklum skatttekjum. Þegar ákvarðanir væru teknar um að leyfa slíkar fjárfestingar þyrfti hins vegar að gæta að ýmsu. Meðal annars hvort viðkomandi fjárfesting falli að ímynd landsins. „Landsvirkjun á að vera óskabarn þjóðarinnar, enda er fyrirtækinu treyst fyrir fjöreggi hennar,“ sagði Katrín Júlíusdóttir.
„Ég er ekki ein um þá skoðun að Landsvirkjun nýtur trausts í samfélaginu. [...] Það á einmitt að vera keppikefli okkar sem stýrum þjóðarskútunni að skapa fyrirtækinu sem bestar aðstæður til að stækka og dafna," sagði hún.
Katrín gagnrýndi að Landsvirkjun hefði verið nýtt til verkefna, þar sem tekin hefur verið staða með ákveðnum kaupendum. „Við eigum jú fyrirtækið og getum sagt því að gera það sem viljum,“ sagði hún, og lagði áherslu á að skoða þyrfti stefnumótun Landsvirkjunar í þessu ljósi. „Ég þurfum ekki og eigum ekki að efna til útsölu,“ sagði Katrín.



















