Segir slaka hagstjórn skaðvald

Friðrik Már segir að hagstjórn hafi verið of slök hér …
Friðrik Már segir að hagstjórn hafi verið of slök hér á landi og það hafi valdið sveiflum. mbl.is/Ómar

Líklegt er að miklar sveiflur í hagvexti og verðbólgu hér á landi eigi sér frekar rætur í slakri hagstjórn en smæð og fábreytni íslenska hagkerfisins.

Er þetta mat Friðriks Más Baldurssonar hagfræðiprófessors en hann skilaði áliti á skýrslu Seðlabankans um peningamálastjórnun.

Í áliti sínu segir Friðrik að í skýrslunni fallist Seðlabankinn á að tilraunin um verðbólgumarkmið í peningamálum hafi mistekist, en að í henni skorti afgerandi tillögur um hvað eigi að taka við eftir gjaldeyrishöft. Að vísu sé talað um „verðbólgumarkmið plús“, þ.e. verðbólgumarkmið með hliðarráðstöfunum sem séu illa skilgreindar.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að rannsóknir sýni að á Íslandi sé erfitt að viðhalda stöðugu verðlagi til lengri tíma nema með meiri sveiflum í framleiðslu og atvinnustigi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK