Gjörbreytt félag á gömlum grunni
„Þetta var ekki auðveld ákvörðun sem Arion banki tók, að endurreisa félag á borð við þetta vorið 2010,“ segir Hilmar Ágústsson, framkvæmdastjóri BM Vallár.
Fyrirtækið varð gjaldþrota í maí 2010, eftir að byggingamarkaðurinn hrundi og erlendar skuldir félagsins hækkuðu mikið í kjölfar gengisfalls krónunnar, en sögu BM Vallár má rekja aftur til ársins 1946, þegar hafin var sala á steypuefni frá Vallá á Kjalarnesi.
Í umfjöllun um BM Vallá í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að fyrirtækið hafi verið mikið að vöxtum, velti tæpum tíu milljörðum króna á ári þegar mest var og hafði rúm fimm hundruð manna í vinnu. Endurreist félag er mikið breytt, en að sögn Hilmars eru stöðugildi um áttatíu í dag og áætluð velta á þessu ári er um tveir milljarðar króna.



















