Atvinnuleysi mælist 7,8%
Á fyrsta ársfjórðungi 2011 voru að meðaltali 13.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,8% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,9% hjá körlum og 5,5% hjá konum, samkvæmt mælingu Hagstofunnar..
Frá fyrsta ársfjórðungi 2010 til fyrsta ársfjórðungs 2011 fjölgaði atvinnulausum um 200 manns.
Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16–24 ára eða 15,9%. Hjá hópnum 24–54 ára var atvinnuleysi 6,2% og 6,7% hjá 55–74 ára. Á fyrsta ársfjórðungi 2011 var atvinnuleysi 8,5% á höfuðborgarsvæðinu en 6,5% utan þess.
Aukið langtímaatvinnuleysi
Af þeim sem voru atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi voru að jafnaði 2400 manns búnir að vera atvinnulausir í 1–2 mánuði eða 17,7% atvinnulausra. Til samanburðar höfðu 3700 manns verið atvinnulausir í 1–2 mánuði á fyrsta ársfjórðungi 2010 eða 27,3% atvinnulausra.
Þeir sem hafa verið
atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem
langtímaatvinnulausir. Á fyrsta ársfjórðungi 2011 höfðu um 3800 manns
verið atvinnulausir svo lengi eða 27,8% atvinnulausra. Árið 2010 voru
þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 2500 manns eða
18,1% atvinnulausra.
Á fyrsta ársfjórðungi 2011 voru 1,4% af þeim
sem voru á vinnumarkaði atvinnulausir í 1-2 mánuði en 2,1% árið 2010.
Langtímaatvinnulausir voru 2,2% vinnuaflsins á fyrsta ársfjórðungi 2011
samanborið við 1,4% árið 2010.
79,2% atvinnuþátttaka
Fjöldi starfandi á fyrsta
ársfjórðungi 2011 var 162.300 manns og fækkaði um 1.500 frá sama tíma
ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 176.000 manns sem jafngildir 79,2%
atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 82,2% og kvenna 76,2%. Til
þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og
atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina
klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi
frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.
Á fyrsta ársfjórðungi
2010 voru alls 177.300 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist þá
79,7%. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 76,1%.



















