Viðskipti
| mbl
| 20.4.2011
| 9:08
Byggingarvísitala hækkar um 4,1%
mbl.is
Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan apríl hækkaði um 4,1% frá fyrri mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.
Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,7% en áhrif vegna leiðréttingar á kerfisvillu við útreikning byggingavísitölu, sem Hagstofan sagði frá um miðjan apríl, er 3,6%. Án leiðréttingar hefði vísitalan hækkað um 0,5%.
Hagstofan hefur ákveðið að taka aftur upp aðferð þá sem notuð var við mat á launakostnaði í vísitölunni fram til janúar 2010 og styðjast við taxtabreytingar kjarasamninga auk mats á öðrum launakostnaði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















