Novator selur eignarhluta sinn í Indian Motorcycles
Novator hefur selt eignarhluta sinn í bandaríska fyrirtækinu Indian Motorcycles. Björgólfur Thor Björgólfsson greinir frá þessu á vef sínum, en þar segir hann að kaupandinn sé Polaris. Hafa samningaviðræður staðið yfir um nokkurt skeið.
Fram kemur að fyrirtækið hafi greint frá kaupunum síðdegis í gær, en í dag hafi það skýrt nánar frá viðskiptunum og afkomunni á fyrsta ársfjórðungi.
„Þegar ég lauk samningum um heildaruppgjör við erlenda og innlenda lánardrottna í júlí á síðasta ári kom fram að allar eigur mínar og Novators lægju til grundvallar uppgjörinu. Arðurinn af eignarhlutum í fyrirtækjum og verðmæti, kæmi til sölu þeirra, myndi ganga til uppgjörs skuldanna, auk ýmissa persónulegra eigna minna. Áætlun um uppgjör skulda hefur gengið eftir. Salan á Indian Motorcycles er ein varðan á þeirri leið og rennur andvirði sölunnar til lánadrottna,“ skrifar Björgólfur.



















