Viðskipti
| mbl
| 20.4.2011
| 11:03
Verðbólga í rúm 3%
Seðlabankinn spáir því nú, að verðbólga fari í um 3,3% síðar á þessu ári og verði á því róli fram á næsta ár. Er það aðallega rakið til alþjóðlegra verðhækkana á hrá- og olíuvöru.
Þetta er um prósentu meiri verðbólga en Seðlabankinn spáði í febrúar sl. Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, sagði á blaðamannafundi í dag, að hann gerði ráð fyrir að þessi verðhækkun á hrávöru taki brátt enda og i slakinn í þjóðarbúskapnum og þegar líði á næsta ár muni slakinn í hagkerfinu tryggja að aftur dragi úr verðbólgunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















