32 milljarðar í gegnum íslensku bankana
Fjármálastjórar sveitarfélagsins Scottish Borders á austurströnd Skotlands lögðu samtals 172 milljónir punda, jafnvirði 32 milljarða króna, inn á reikninga fjögurra íslenskra banka frá janúar 2006 til ágúst 2008.
Um var að ræða skammtímainnlán en 10 milljónir punda voru inni á reikningunum þegar íslenska bankakerfið hrundi.
Blaðið Sunday Mail í Skotlandi segir frá þessu í dag og vitnar til leyniskjals þar sem þessar færslur eru raktar. Segir blaðið að skjalið sýni hina ótrúlegu fjármagnsflutninga, sem voru á milli Borders og Reykjavíkur á þessu tímabili.
Alls var um að ræða 94 millifærslur á tímabilinu. Hæstu millifærslurnar voru sjö fjögurra milljóna punda innlagnir. Blaðið segir að þegar bankakerfið hrundi hafi 10 milljónir punda verið inni á reikningunum. Sveitarfélaginu hafi ekki tekist að endurheimta 7,4 milljónir punda.
Endurskoðendur hafa komist að þeirri niðurstöðu, að millifærslurnar hafi verið í fullu samræmi við reglur.
Sunday Mail segir, að Scottish Border hafi verið eitt af átta skoskum sveitarfélögum sem áttu samtals 46,5 milljónir punda inni á reikningum hjá Landsbankanum, Glitni og breskum dótturfélögum íslensku bankanna þegar íslenska bankakerfið féll haustið 2008.
Um 112 þúsund manns búa í Scottish Borders.



















