Héraðsdómur staðfestir neyðarlög

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur.

Héraðsdómur Reykjavíkur skar í dag úr um að innstæður í Icesave reikningum skuli teljast forgangskröfur í  þrotabú Landsbankans. Í raun staðfestir héraðsdómur neyðarlögin svokölluðu, sem kváðu á um forgang innstæðna í þrotabú fjármálastofnana.

Almennir kröfuhafar höfðu gert kröfu um að innstæðurnar skyldu ekki teljast slíkar forgangskröfur. Hefði dómurinn komist að annarri niðurstöðu hefði það hleypt áætlunum um endurheimtur vegna Icesave innstæðna í uppnám, enda hefðu innstæðutryggingasjóðir Hollendinga og Breta þá fengið mun lægri upphæð úr þrotabúinu en ella. 

Úrskurðurinn verður án efa kærður til Hæstaréttar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK