Tchenguiz vill selja
Kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz hefur sett lúxusvillu sína á frönsku rivíerunni á söluskrá en uppsett verð er 30 milljónir evra, tæpir 5 milljarðar króna.
Fram kemur á vefnum citiam.com, að Tchenguiz hafi falið fasteignasölunni Knight Frank að selja húsið, sem nefnist Villa Symphonie og er í St. Tropez.
Haft er eftir talsmanni Tchenguiz, að hann sé að selja húsið vegna markaðaðstæðna. „Hann hefur sofið þarna í eina nótt á síðustu fimm árum og það er mikil eftirspurn eftir dýrum fasteignum í St. Tropez," segir talsmaðurinn.
Hann bætir við að það séu einkum rússneskir kaupsýslumenn, sem vilji kaupa hús á svæðinu.
Vincent Tchenguiz var ásamt bróður sínum, Robert, færður til yfirheyrslu hjá bresku efnahagsbrotalögreglunnar í mars í tengslum við rannsókn á falli Kaupþings. Robert Tchenguiz var stærsti einstaki viðskiptavinur Kaupþings en bræðurnir hafa báðir höfðað skaðabótamál gegn bankanum.





















