Viðskipti
| mbl
| 10.5.2011
| 6:45
Dregur úr tapi SAS
Tap á rekstri norræna flugfélagsins SAS nam 373 milljónum sænskra króna, jafnvirði 6,8 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins og helmingaðist frá sama tímabili í fyrra.
Félagið segir, að þetta sé að þakka sparnaðaráætlun, sem hefur verið í gildi síðustu misseri og góðar líkur séu á að hagnaður verði á rekstrinum fyrir skatta á árinu svo framarlega sem eldsneytisverð haldi ekki áfram að hækka.
Sölutekjur á tímabilinu námu 9,2 milljörðum sænskra króna en voru 9,5 milljarðar fyrir ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















