Fréttaskýring: Starfsmenn bera ábyrgð

Heildarfjárhæð lánanna var 32 milljarðar króna en tæplega 15 milljarðar …
Heildarfjárhæð lánanna var 32 milljarðar króna en tæplega 15 milljarðar voru veittir með persónulegri ábyrgð. Langmest til æðstu stjórnenda. mbl.is/Golli

Fyrrverandi yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings, Helgi Þór Bergs, þarf að reiða af hendi 642 milljónir króna til slitastjórnar bankans, ef dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær verður staðfestur af Hæstarétti.

Upphæðin er til komin vegna ábyrgðar Helga á lánum sem hann tók fyrir hrun, til hlutabréfakaupa í Kaupþingi. Annar dómur féll einnig í gær þar sem fyrrverandi yfirmaður viðskiptaþróunar, Þórður Pálsson, var dæmdur til að greiða tæpar 27 milljónir. Töldu þeir Helgi og Þórður sig ekki bera ábyrgð á lánunum m.a. þar sem Hreiðar Már Sigurðsson, þáverandi bankastjóri, gaf út yfirlýsingu í september 2008, um niðurfellingu ábyrgðarinnar. Ákveðið hafði verið á árinu 2005 að sjálfsskuldarábyrgð starfsmanna skyldi aðeins vera 10%.

Héraðsdómur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að starfsmönnum hefði ekki verið lofað skaðleysi af hlutabréfakaupunum og ekki yrði litið á yfirlýsingu Hreiðars sem neitt annað en gjöf. Því ákvað dómurinn að riftun slitastjórnar Kaupþings á yfirlýsingu Hreiðars Más frá því í fyrra skyldi standa óhögguð.

Ekki var fallist á að vegna kvaða í lánasamningunum hefðu starfsmenn ekki getað selt bréfin og var ekki talið sannað að þeim hefði verið meinað að gera það. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis kemur þetta viðhorf fram, en árið 2008 seldu starfsmenn aðeins 0,6% af heildarhlutafé sínu í bankanum. Þeir voru í „gíslingu í meira en ár og jafnvel lengri tíma hjá banka með þessa stöðu. Nema það bara að segja upp eða hætta og þá vissi kannski fólk ekki í raun og veru hver staða þess var,“ sagði einn starfsmaður við RNA. Hefðu lykilstjórnendur selt bréfin sín hefði bankinn fallið.

Fordæmisgefandi mál

Alls námu útlán til hlutabréfakaupa starfsmanna í Kaupþingi um 50 milljörðum króna, samkvæmt skýrslu Hreiðars Más hjá RNA, en nú er talað um að 32 milljarðar hafi verið lánaðir til stjórnenda og lykilstarfsmanna. Þar af voru um 20 starfsmenn með 90% þeirrar fjárhæðar. Alls hefur slitastjórnin um 20 dómsmál í gangi og verður eitt flutt í Héraðsdómi Reykjaness á morgun, miðvikudag, og líklega tvö önnur fyrir sama dómstóli í næstu viku. Að sögn Guðna Haraldssonar, lögmanns slitastjórnar, eru þau mál mjög keimlík að málsatvikum og þeim röksemdum sem teflt er fram, eins og í málunum í gær. Þau hafa því talsvert fordæmisgildi sem prófmál.

Málin tuttugu varða 65 fyrrum starfsmenn Kaupþings en þar af hafa 35 þegar samið um sín lán og samþykkt að greiða 65% af kröfunum. Alls er óvíst hversu mikið innheimtist þar sem flestir þeirra sem neita að semja eru þeir sem voru með langhæstu upphæðirnar, fyrrverandi æðstu yfirmenn Kaupþings.

Persónulega fékk stjórnarformaðurinn Sigurður Einarsson skv. skýrslu RNA 6,3 milljarða til hlutabréfakaupa í Kaupþingi, en félög í eigu Sigurðar fengu þó lán þessu til viðbótar frá dótturfélögum Kaupþings erlendis. Hreiðar Már flutti sín lán í einkahlutafélag á árinu 2007.

25 starfa hjá Arion nú

Dómsmálin hafa ekki áhrif á marga starfandi bankamenn. Þó starfa í dag 25 af þeim 65 sem niðurfellingin tók til hjá Arion banka. Þeir hafa samið um greiðslur af sínum lánum við slitastjórnina, að sögn Guðna Haraldssonar.

Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir engan hafa leitað til samtakanna vegna þessa og tekur fram að félagið hafi ekki komið að samningum um hlutabréfaviðskipti starfsmanna. Nokkrir hafa stofnað sín eigin fyrirtæki.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK