Engar upplýsingar um laun bankastjórnenda
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að ráðuneyti hans hafi ekki tök á því að svara spurningum um launagreiðslur til æðstu stjórnenda gömlu og nýju bankanna og launagreiðslur þeirra sem sitja í skilanefndum og slitastjórnum gömlu bankanna.
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, lagði fram fyrirspurn um launagreiðslur til stjórnenda banka, skilanefnda og slitastjórna. Vildi hann vita um laun bankastjóra og bankaráðsmanna Glitnis, Kaupþings og Landbankans á árunum 2005 til 2008 og síðan bankastjóra og bankaráðsmanna Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans á tímabilinu frá 2009 til 2011.
Þá vildi Árni Þór vita hverjar voru mánaðarlegar launagreiðslur til skilanefndarmanna og slitastjórnarmanna Glitnis, Kaupþings og Landsbankans frá því þessar nefndir voru settar á laggirnar. Loks vildi hann vita hvernig laun stjórnendanna væru ákvörðuð.
Árni Páll segir í svarinu að efnahags- og viðskiptaráðuneytið safni engum upplýsingum frá bönkum, skilanefndum eða slitastjórnum. Fjármálaeftirlitið og eftir atvikum Seðlabanki Íslands safni upplýsingum frá eftirlitsskyldum aðilum í samræmi við það eftirlitshlutverk sem þessum stofnunum sé falið.
Ráðuneytið hafi skrifað Fjármálaeftirlitinu bréf 17. mars sl. og óskað eftir að stofnunin sendi ráðuneytinu svardrög eftir því sem upplýsingar væru til hjá stofnuninni.
Í svarbréfi Fjármálaeftirlitsins komi fram að stofnunin hafi ekki aðrar upplýsingar um það sem spurt sé um en þær sem komið hafi fram opinberlega, svo sem í ársreikningum fjármálafyrirtækja.
„Í ljósi framangreinds hefur ráðuneytið ekki tök á því að svara þeim atriðum sem spurt er um í fyrirspurninni," segir í svari Árna Páls.
Uppfært klukkan 15:00.
Árni Þór gerði svarið að umræðuefni þegar þingfundur hófst á Alþingi í dag og sagði að á tveimur mánuðum hefði ráðherrann komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að svara sjálfsögðum spurningum af þessum toga.
„Ég tel þetta mjög ámælisvert," sagði Árni Þór og sagði að forseti Alþingis eigi að krefja ráðherrann svara við fyrirspurninni.



















