Fitch breytir horfum í stöðugar

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings breytti í dag horfum fyrir lánshæfiseinkunn Íslands úr neikvæðum í stöðugar. Einkunnin er hins vegar óbreytt, BB+, sem þýðir að íslensk ríkisskuldabréf eru flokkuð í svonefndum ruslflokki. 

 Að sögn Paul Rawkins, sem fer með málefni Íslands hjá Fitch, hefur hættan á að óleyst Icesave-deila leiði til þess að fjármögnun í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði dregin til baka minnkað verulega. Einnig er bent á í greinargerð með ákvörðun Fitch að stjórnvöld séu fullviss um að endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans muni skila á bilinu 90-100% af kröfum vegna Icesave-reikninga.

Að mati Fitch þá hafa horfurnar hér á landi skánað að undanförnu. Þrátt fyrir að mikill samdráttur hafi verið í hagkerfinu í fyrra telja sérfræðingar Fitch að ákveðinn stöðugleiki sé að komast á og hagvaxtarspá þeirra fyrir þetta ár hljóðar upp á 2%.

Hinsvegar telja sérfræðingar Fitch að nauðsynlegt sé að ráðast í víðtækar aðgerðir vegna skuldsetningar einkageirans. Fram kemur í greinargerðinni að slíkar aðgerðir séu forsenda viðreisnar hagkerfisins og að stöðugleiki komist á fjármálageirann. Einnig er nauðsynlegt að viðhalda hagstæðum viðskiptajöfnuði sem og auka á gjaldeyrisforðann til þess að skapa forsendur þess að hægt sé að afnema gjaldeyrishöft og þar af leiðandi fá skilaboð markaðarins um raunverulegt verðgildi krónunnar.

Fitch segir í greinargerðinni að frekari ákvarðanir um lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins muni meðal annars taka mið að því hvort lokið verði við efnahagsáætlun AGS, hvort að skýr merki um viðsnúning og hagvöxt sjáist í hagkerfinu og hvort áfram verði haldið að koma böndum á skuldasöfnun ríkissjóð innanlands og erlendis. Tekið er fram að meðaltekjur á Íslandi séu óvenjuháar samanborið við þau ríki sem eru í ruslflokki hjá Fitch og það sama megi segja um viðskiptaumhverfið hér á landi. Hinsvegar er nauðsynlegt að mati sérfræðinga matsfyrirtækisins að ráðast í aðgerðir vegna skuldsetningar einkageirans, afnema gjaldeyrishöft og endurreisa eðlileg samskipti við erlenda kröfuhafa ásamt því að koma á stöðugleika á gengismálin og árangur í þeim efnum muni ráða mestu um hvort að lánshæfiseinkunnin verði hækkuð þannig að íslenska ríkið teljist fjárfestingahæfur útgefandi skuldabréfa.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK