Stork færir út kvíarnar
Stork Technical Services hefur gengið frá kaupum á RBG Ltd, en félagið starfar líkt og Stork Technical Services á sviði þjónustu við olíu- og gasiðnað.
Kaupin voru gerð í gegnum London Acquisition, móðurfélag
Stork. Eyrir Invest á 17% í London Acquisition, sem á og
rekur flugiðnaðardeild Fokker og Stork Technical Services. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Eyri Invest.
„ Eyrir Invest í samstarfi við Candover yfirtök iðnaðarsamstæðuna Stork í ársbyrjun 2008, samhliða því keypti Marel Stork Food Systems út úr samstæðunni. Kaup Stork Technical Services nú er í samræmi við “kaup og styðja til vaxtar” stefnu Eyris Invest og Candover,“ segir í tilkynningunni.
Stork
Technical Services sem veltir um 1,4 milljörðum evra eftir kaupin og hefur
samtals um 14.500 starfsmenn. Meginstarfssemi félagsins er nú í Norðursjó, Benelux,
Kaspíahafi og S-Ameríku.



















