Ísland af athugunarlista S&P
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur tekið íslenska ríkið af athugunarlista en segir enn að horfur fyrir lánshæfiseinkunn íslenskra ríkisskuldabréfa séu neikvæðar.
„Dregið hefur úr þeirri hættu, sem steðjaði að erlendri fjármögnun Íslands," segir S&P m.a. í tilkynningu. Einkunn ríkissjóðs Íslands er áfram BBB-/A-3 en einkunn ríkissjóðs fyrir innlendar skuldbindingar hefur verið lækkuð úr BBB- úr BBB. Segist S&P telja, að ríkissjóður hefði minna svigrúm til fjármögnunar innanlands ef gjaldeyrishafta nyti ekki við.
Horfur fyrir lánshæfismat Íslands eru áfram neikvæðar og endurspegla hættu á að efnahagsbati og skuldalækkun ríkissjóðs verði ekki sem skyldi.
Matsfyrirtækið Fitch breytti í gær horfum fyrir lánshæfiseinkunn Íslands úr neikvæðum í stöðugar en einkunn Íslands hjá Fitch er lægri en hjá S&P og Moody's.



















