Lækka líka Íbúðalánasjóð
Standard & Poor's lækkaði dag lánshæfismat Íbúðalánasjóðs. Fyrr í dag var lánshæfismat Landsvirkjunar lækkað.
Íbúðalánasjóður er lækkaður með neikvæðum horfum. Sökum þess að lánshæfismat íslenska ríkisins fyrir innlendar skuldbindingar var lækkað í gær, lækkar lánshæfismat Íbúðalánasjóðs nú. Líkt og Landsvirkjun og ríkissjóður Íslands, hefur Íbúðalánasjóður verið tekinn af athugunarlista.
Ríkissjóður setti 33 milljarða króna inn í Íbúðalánasjóð fyrir skömmu, en í greinagerð Standard & Poor's kemur fram að ríkið muni auka eigið fé sjóðsins aftur fyrir lok þessa árs. Íbúðalánasjóður er rekinn með ríkisábyrgð. Enda kemur fram hjá matsfyrirtækinu að starfsemi sjóðsins sé samofin ríkisrekstrinum almennt. Telja Standard & Poor's að lánshæfi Íbúðalánasjóðs gæti lækkað, ef taldar séu líkur á því að ríkið standi ekki við að styðja við sjóðinn.



















