S&P gerir ráð fyrir að álverið við Helguvík rísi

Norðurál hefur undirbúið álver í Helguvík um langt skeið. stækka

Norðurál hefur undirbúið álver í Helguvík um langt skeið. mbl.is/Árni Sæberg

Morgunblaðið Þórður Gunnarsson thg@mbl.is

Sérfræðingar Standard & Poor's (S&P) reikna með því að álver rísi í Helguvík í forsendum sínum við ákvörðun á lánshæfismati Íslands.

Eileen Zhang, sem hefur yfirumsjón með greiningu á íslensku efnahagslífi, segist í samtali við Morgunblaðið ekki hafa skynjað annað frá yfirvöldum á Íslandi, en að þau muni ekki standa í vegi stórra fjárfestinga í stóriðju og virkjunum.

„Í grunninn gerum við ráð fyrir að þau fjárfestingaverkefni sem hafa verið ákveðin verði að raunveruleika. Þar á meðal álver við Helguvík, kísilverksmiðja á sama stað og nauðsynlegar virkjanir til að knýja þá starfsemi,“ segir hún.

S&P afréð í gær að halda lánshæfi Íslands í fjárfestingaflokki og taka landið af athugunarlista. Lánshæfismat Íslands, samkvæmt S&P, stendur nú í BBB-, sem er einum flokki fyrir ofan svokallaðan ruslflokk, eða spákaupmennskuflokk.

Lægri einkunn í krónum

Athygli vekur að S&P ákvað að lækka lánshæfi íslenska ríkisins í innlendri mynt, það er að segja íslenskum krónum. Zhang segir meginástæðu þess vera að gjaldeyrishöft verði við lýði lengur en S&P hafði áður vænst:

„Gjaldeyrishöftin verða í gildi munu lengur en við bjuggumst við í upphafi. Það mun hafa áhrif á hagvöxt og fjárfestingu á Íslandi til hins verra. Þar af leiðandi lækkuðum við lánshæfið í krónum,“ segir hún og heldur áfram: „Við höfum þó skilning á að gjaldeyrishöft þurfi til að tryggja stöðugleika til skamms tíma. Afnám þeirra mun síðan ráðast af aðstæðum á alþjóðlegum fjármálamarkaði og hversu hratt íslenska hagkerfið réttir úr kútnum. Að því leytinu eru Íslendingar líka háðir aðstæðum í öðrum löndum, hvað varðar afnám hafta og þau vaxtakjör sem íslensku ríkinu bjóðast á lánsfé,“ segir Zhang.

Norðurlandalán lykilatriði

Zhang segir að ákvörðun Norðurlandanna um að halda lánalínum til Íslands opnum, og að AGS-áætlunin haldist í horfinu, hafi skipt sköpum við þá ákvörðun að lánshæfi Íslands í erlendri mynt hafi verið haldið óbreyttu. Áður hafði S&P gefið í skyn að lánshæfismat Íslands kynni að verða fært niður, yrði Icesave-samkomulaginu hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sem varð og raunin. Zhang segir mikilvægast að skammtímafjármögnun ríkisins sé trygg.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Skuldakreppan á borð G20

19:54 Fjármálaráðherrar G-20 ríkjanna (20 helstu iðnríkja heims) og seðlabankastjórar munu koma saman á fundi í Mexíkóborg um helgina og ræða skuldakreppuna á evrusvæðinu. Meira »
Lestur blaða hefur að miklu leyti færst yfir í rafrænt form.

Gannett rukkar fyrir lestur á netinu

19:29 Gannett, stærsta dagblaðaútgáfa Bandaríkjanna, ætlar að krefja lesendur dagblaða í eigu útgáfunnar fyrir lestur á fréttum blaðanna á netinu. Um áttatíu dagblöð eru í eigu Gannett og þarf að greiða fyrir lestur þeirra allra fyrir utan USA Today. Meira »

Rúmlega 400 missa vinnuna

21:07 Flugfélagið Air New Zealand ætlar að segja upp ríflega 400 starfsmönnum fyrir lok rekstrarársins. Á fyrstu sex mánuðum þess dróst hagnaður Air New Zealand saman um 61,2% frá sama tímabili árið á undan. Meira »

Niðurfærsla samþykkt

Gríðarleg óánægja er með fyrirhugaðan niðurskurð í Grikklandi og mótmæli daglegt brauð við þinghúsið í ...
16:55 Gríska þingið samþykkti í dag frumvarp til laga um að heimila niðurfærslu 107 milljarða evra af skuldum ríkissjóðs hjá bönkum og fjármálastofnunum. Meira »

Viðskiptavinir Nova ánægðastir

Fulltrúar fyrirtækja sem mældust hæst í Íslensku ánægjuvoginni.
15:49 Viðskiptavinir Nova eru ánægðastir samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2011. Fékk fyrirtækið 73,3 stig af 100 möguleikum í mælingunni. Í fyrsta sæti í flokki banka er Íslandsbanki og í flokki tryggingafélaga er Tryggingamiðstöðin með hæstu einkunnina. Meira »

Hlutabréf lækka en evran hækkar

Frá kauphöllinni í Frankfurt í dag
15:30 Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag en evran hefur styrkst gagnvart Bandaríkjadal.   Meira »

Skapar 20.600 störf

18:48 Efnahagslegur ábati af flugtengdri starfsemi á Íslandi er margháttaður. Þannig skapar atvinnugreinin alls um 20.600 störf og þjóðhagsleg áhrif á verga landsframleiðslu eru kringum 12,9%. Meira »

Valitor fær aðgang að upplýsingum

16:40 Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að neita Valitor um aðgang að upplýsingum um nöfn og verð í kvörtun Borgunar hf. Meira »

Færir Advania forystu?

Afleit afkoma RBS

Royal Bank of Scotland (RBS)
15:32 Tap breska bankans Royal Bank of Scotland nam 1,99 milljörðum punda, 389,40 milljörðum króna, á síðasta ári.   Meira »

Norska krónan styrkist enn

Norskar krónur.
15:07 Norska krónan hefur verið að styrkjast síðustu misseri og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru í níu ár.  Meira »

Ný efnahagslægð á leiðinni

Olli Rehn.
14:59 Skuldakreppan á evru-svæðinu mun draga svæðið niður í nýja efnahagslægð í ár, líkt og lengi hefur verið spáð. Flest nágrannaríkin, sem ekki eru með evruna, munu fara sömu leið, samkvæmt nýrri spá Evrópusambandsins. Meira »

Vinnumarkaður að rétta úr kútnum

Atvinnuleysi fer minnkandi í Bandaríkjunum
15:25 Litlar breytingar urðu á nýjum umsóknum um atvinnuleysisbótum í Bandaríkjunum í síðustu viku og bendir allt til þess að vinnumarkaðurinn sé hægt og bítandi að rétta úr kútnum þar í landi. Meira »

Rammagerðin opnar verslun á Akureyri

Lovísa Óladóttir framkvæmdastjóri og Halla Sigbjörnsdóttir verslunarstjóri.
15:03 Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri. Meira »

Ekki spurning um hvort heldur hvenær

Seðlabanki Íslands
14:40 Greiningardeild Arion banka telur að stutt sé í næstu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands en í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun þann 8. febrúar kemur fram að tveir af fimm nefndarmönnum töldu að hækka ætti vexti. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir