Arion kaupir SPRON Factoring
Arion banki hefur gengið frá kaupum á kröfufjármögnunarfyrirtækinu SPRON Factoring. Kemur þetta fram í tilkynningu frá bankanum.
Í tilkynningu frá bankanaum segir að félagið sé sérhæft á sviði kröfufjármögnunar. Einnig veitir félagið þjónustu á sviði áhættustýringu kröfusafna, viðskiptamannabókhald og innheimtu. Einnig selur félagið greiðslufallstryggingar í samvinnu við erlend tryggingafélög. Flestir þekkja greiðslufallstryggingu eflaust betur undir nafninu skuldatryggingaálag.
Hrönn Greipsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækisins, gegnir stöðunni áfram. „Kröfuþjónusta hentar útflutningsfyrirtækjum vel og eru kerfi SPRON Factoring sérstaklega hönnuð með þarfir þeirra í huga. Þá verður bankinn einnig vel í stakk búinn til að þjónusta stærri kröfusöfn á innanlandsmarkaði. Rafrænn aðgangur viðskiptavina að upplýsingum, uppgjörum og greiðslum, verður í gegnum vef Arion banka,” segir í tilkynningu bankans.
„Við leggjum mikið upp úr því að veita viðskiptavinum okkar fjölbreytta fjármálaþjónustu. Með kaupum á SPRON Factoring, sem er sterkt og vel rekið félag, bætir bankinn mikilvægum þætti við þjónustuframboð sitt gagnvart fyrirtækjum sem stunda reikningsviðskipti við önnur fyrirtæki. Með starfsmönnum SPRON Factoring kemur sérþekking á sviði kröfuþjónustu kemur viðskiptavinum Arion banka til góða,“ segir Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion.



















