Betri rekstrarafkoma hjá OR
Regluleg starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) skilaði betri afkomu fyrstu þrjá mánuði þessa árs en í fyrra. Það má rekja til aukinna tekna og aðhalds í rekstri. Handbært fé frá rekstrinum nam 3,9 milljörðum króna og hækkaði um tæpar 983 milljónir.
Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Orkuveitunnar. Þrátt fyrir óhagstæða gengisþróun á fyrsta ársfjórðungi 2011 voru fjármagnsliðir jákvæðir og ræðst það af mikilli hækkun á álverði á tímabilinu sem eykur bókfært verðmæti raforkusölusamninga OR til stórnotenda.
Hagnaður á fyrsta ársfjórðungi 2011 nam 2.318 milljónum króna en var 7.187 milljónir króna á fyrsta fjórðungi 2010, þegar gengisþróun var hagfelldari en nú.
Árshlutareikningur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2011 var samþykktur og áritaður af stjórn og forstjóra á fundi stjórnar í dag.
Rekstrartekjur tímabilsins námu 8.693 milljónum króna en voru 7.422 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 5.467 milljónir króna samanborið við 4.232 milljónir króna sama tímabil árið áður.
Heildarskuldir fyrirtækisins þann 31. mars 2011 voru 240.958 milljónir króna en voru 233.694 milljónir króna í árslok 2010. Eiginfjárhlutfall var 18,6% þann 31. mars 2011 en var 18,4% í árslok 2010.



















