Vaxandi verðbólga

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí  hækkaði um 0,94% frá fyrra mánuði samkvæmt útreikningu Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,4% og undanfarna þrjá mánuði  um 2,7% sem jafngildir 11,2% verðbólgu á ári.

Vísitala án húsnæðis hækkaði um 0,73% í maí, um 3,1% síðustu 12 mánuði og 10,3% síðustu þrjá mánuði.

Hækkun vísitölunnar nú er ívið meiri en greiningardeildir banka og fjármálafyrirtækja spáðu en spár voru almennt um 0,7-0,8% hækkun.

Hagstofan segir, að gjöld fyrir heitt vatn og frárennsli hafi hækkað um 10% og flugfargjöld til útlanda um 15,5%. Kostnaður vegna viðhalds og viðgerða á húsnæði jókst um 3,7%, þar af voru 0,12% áhrif vegna leiðréttingar á vinnulið byggingarvísitölu. Þá hækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 0,8%.   

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK