2,5% hrein raunávöxtun lífeyrissjóða
Fram kemur á heimasíðu Landssamtaka lífeyrissjóða að til að lífeyrissjóðir geti staðið undir lífeyrisskuldbindingum sínum þurfi árleg langtímaávöxtun þeirra að nema 3,5% umfram innlenda verðbólgu. Afkoma síðustu fimm ára er langt undir þeirri viðmiðun og munar þar mest um mjög neikvæða afkomu árið 2008. Fimm ára meðaltal raunávöxtunar sjóðanna 2006-2010 var neikvætt um 2,4% en 10 ára meðaltal áranna 2001-2010 var aftur á móti jákvætt um 1,6%.
„Áföllin eftir bankahrunið leiddu til þess að nokkrir lífeyrissjóðir urðu að lækka lífeyrissréttindi og skerða lífeyrisgreiðslur. Þessir sömu sjóðir höfðu aukið réttindi sjóðfélaga umfram hækkun vísitölu þegar ávöxtun var hvað hæst á árunum 2003 til 2006.
Arnar Sigurmundsson sagði á aðalfundinum að frá september 2008 hefði vísitala fyrir lífeyrisgreiðslur sjóðanna hækkað um 18% en launavísitala hækkað um tæplega 10% á sama tímabili.
Umfjöllun um þörfina á 3,5% raunávöxtun lífeyrissjóðanna væri á tíðum villandi og oft sett í beint samhengi við raunávöxtun á innlendum skuldabréfum lífeyrissjóðanna. Og Arnar bætti við:
„Um er að ræða meðalraunávöxtun og getur ávöxtun ýmist verið meiri eða minni á einstökum eignaflokkum. Engu að síður er ljóst að erfitt getur verið að ná langtíma 3,5% meðalraunávöxtun á eignir sjóðanna. Sveiflur í efnahagslífinu og fjármálakreppur með falli í ávöxtun, samhliða eignarýrnun, dregur niður meðaltalið hvort sem miðað er við 5 eða 10 ár,“ segir í frétt frá Landssamtökum lífeyrissjóða.



















