Viðskipti
| mbl
| 27.5.2011
| 6:34
Ætlar sér að eignast Iceland
Forstjóri bresku verslunarkeðjunnar Iceland, Malcolm Walker, ætlar sér að eignast meirihlutann í keðjunni þegar slitastjórnir íslensku bankanna, Landsbankans og Glitnis, selja sinn hluta í keðjunni. Samkvæmt heimildum Financial Times hefur Walker átt fundi með ráðgjöfum slitastjórnar Landsbankans.
Walker á ásamt fleiri lykilstjórnendum Iceland 23% hlut í keðjunni. Á síðasta ári lagði hann fram tilboð upp á 1 milljarð punda, 190 milljarða króna, í hlut slitastjórnanna en tilboðinu var hafnað þar sem það þótti of lágt.
Í frétt Financial Times kemur fram að slitastjórn Landsbankans vilji fá 1,8-2 milljarða punda fyrir hlut sinn í Iceland.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















