Viðskipti
| Morgunblaðið
| 1.6.2011
| 5:30
Bankarnir hafa enn töluvert svigrúm
Stór hluti tekna viðskiptabankanna í fyrra er tilkominn vegna uppfærslu á virði útlána og á sama tíma hefur endurskipulagning útlána gengið hægt, m.a. vegna óvissu um aðgerðir yfirvalda.
Þetta kemur fram í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleikann, sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag.
Í skýrslunni kemur fram að samanlagðar tekjur viðskiptabankanna af virðishækkun lánasafna sinna í fyrra námu 78 milljörðum. Einnig segir að þar sem útlán voru færð til þeirra frá gömlu bönkunum með ríflegum afslætti þá hafi þeir enn töluvert svigrúm til endurskipulagningar útlána.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















