Metnir á 200 milljarða
Skilanefnd Glitnis metur 95% eignarhlut sinn í Íslandsbanka á 111 milljarða króna, sé miðað við fjárhagsyfirlit skilanefndar fyrir tímabilið sem endaði í mars síðastliðnum.
Verðmæti Íslandsbanka hefur aukist jafnt og þétt á bókum skilanefndarinnar, allt frá því að bankinn komst í eigu nefndarinnar. Skilanefnd Kaupþings metur 87% eignarhlut sinn í Arion banka á 92 milljarða króna, samkvæmt fjárhagsyfirliti frá skilanefndinni miðað við árslok 2010, en ekki er nýrri upplýsingar að hafa um
eignasafn skilanefndar Kaupþings.
Í umfjöllun um mál þetta í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag segir, að samanlagt virði bankanna tveggja sé því að minnsta kosti 200 milljarðar króna, en skilanefndir bankanna eru jafnan afar varfærnar í verðmati á eignum sínum.



















