Viðskipti
| mbl
| 7.6.2011
| 12:28
Lánshæfiseinkunn Nokia lækkar
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch lækkaði í dag lánshæfiseinkunn finnska farsímaframleiðandans Nokia í ljósi þess að fyrirtækið hefur lækkað spá um afkomu sína fyrir þetta ár.
Einkunnin fyrir langtímaskuldbindingar er lækkuð úr BBB+ í BBB-. Þá var einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar lækkuð í F3.
Nokia er stærsti farsímaframleiðandi heims en markaðshlutdeild fyrirtækisins hefur þó farið minnkandi á síðustu misserum. Hún var 29% á alþjóðlegum farsímamarkaði á fyrsta fjórðungi ársins en 33% ári fyrr og 40% á fyrri hluta ársins 2008.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















