Ingvar Helgason og B&L í söluferli
Miðengi ehf., SP Fjármögnun hf. og Lýsing hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á öllu hlutafé í BLIH ehf, móðurfélagi Ingvars Helgasonar ehf. og Bifreiða og landbúnaðarvéla ehf.
Samhliða verður fasteign sem hýsir starfsemi félagsins að Sævarhöfða í Reykjavík boðin til kaups.
Fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna lauk fyrr á þessu ári þegar nýir eigendur komu að þeim, en eigendur þeirra eftir endurskipulagningu eru Miðengi, dótturfélag Íslandsbanka, SP Fjármögnun og Lýsing.
Stefnt er á að söluferlið hefjist formlega í lok ágúst á þessu ári. Á þeim tíma verður söluferlið auglýst með formlegum hætti og tilkynnt um tímasetningar þess og kröfur seljenda til þeirra sem þátt geta tekið í söluferlinu.



















